Vökvi sem er skaðlaus mönnum,dýrum, grænmeti og nátturu

Sótthreinsun framleidd á staðnum

EH13 býður upp á ECA-rafala sem framleiða sótthreinsandi efnið Anolyte á þínum vinnustað úr engu öðru en vatni, salti og rafmagni. Búnaðurinn einfaldar þrif og sótthreinsun, eykur öryggi starfsfólks og dregur úr umhverfisspori fyrirtækisins. Við aðstoðum fyrirtæki í matvælaframleiðslu, heilbrigðisgeiranum og iðnaði að tryggja hreinlæti án skaðlegra efna.

Allar helstu aðstæður!

Hvar hentar ECA?

Sundlaugar

Hentar vel við rekstur sundlauga, bæði sem hreinsandi og sótthreinsandi efni.

Heilsugæslur

Nýtist við sótthreinsun þar sem eru viðkvæmir einstaklingar, á búnaði og starfsumhverfi.

Iðnaður

Tilvalið í hvers kyns iðnað þar sem halda þarf ýmsum búnað hreinum og/eða sótthreinsuðum.

Ríkisrekstur

Sama hvort sem um ræðir einka eða ríkisrekstur þá hentar ECA öllum þínum þörfum.
Lausn fyrir landbúnað
Öruggt í notkun, ekki ætandi, skaðlaust mönnum, dýrum, og náttúru
Lesa Meira
Lausn fyrir iðnað og stofnanir
Notist alls staðar þar sem sótthreinsun er þörf
Lesa Meira
Lausn fyrir sjávarútveg
Framleit úr íslensku vatni, rafmagni og salti
Lesa Meira

Notagildi ECA rafala

Góðum árangri hefur nást með notkun ECA rafala í fiskiðnaði, landbúnaði og í raun alls staðar þar sem þörf er á lífrænni sótthreinsun. Notagildi ECA rafala er undirstrikað vegna hve fjölþætt lausn þetta er, hvort sem nýta á hana til þrifa eða sem viðbót í drykkjarvatn dýra þá er ECA skilvirk og örugg lausn.

Umhverfi og öryggi

Anolyte er samþykkt efni af Evrópusambandinu sem óeitrað og niðurbrjótanlegt efni og því um umhverfisvæna og örygga lausn að ræða fyrir þitt fyrirtæki. Efnið er drykkjarhæft og óskaðlegt mönnum, dýrum og náttúrunni.
Scroll to Top