ECA / Anolyte

ECA / Anolyte

Hýpóklórsýra ANOLYTE (HOCl)

Anolyte er öflug og byltingarkennd sótthreinsilausn sem byggir á hýpóklórsýru (HOCl), sama efni og ónæmiskerfi líkamans framleiðir náttúrulega til að berjast gegn sýkingum. Það vinnur á bakteríum, veirum, og sveppum, þar á meðal SARS-CoV-2. Lausnin er mild, umhverfisvæn og fullkomlega örugg fyrir fólk, dýr og náttúru, án þess að skilja eftir skaðlegar leifar . Anolyte er framleitt á Íslandi úr vatni, rafmagni og salti og skilar áreiðanlegri hreinsun á einungis 1-5 mínútum, tilvalið fyrir bæði heimili og iðnað.

Alhliða lausn

Fjölhæfir möguleikar

Iðnaður

Tilvalið í hvers kyns iðnað þar sem halda þarf ýmsum búnað hreinum og/eða sótthreinsuðum.

Sjávarútvegur

ECA rafalar henta bæði á sjó og landi fyrir hvers kyns sjávarútveg.

Landbúnaður

Hvort sem nýta á ECA fyrir kjúklingabú, mjólkurbú eða svínaeldi þá er ECA öflug og örugg lausn fyrir þig.

Stofnanir

Nýtist við sótthreinsun þar sem eru viðkvæmir einstaklingar, á búnaði og starfsumhverfi.

ECA rafalar

ECA rafall er háþróaður búnaður sem framleiðir sótthreinsandi og hreinsandi lausnir á staðnum með því að leiða saltvatn í gegnum rafgreiningarhólf. Þar aðskiljast vökvarnir í tvær lausnir: Anolyte, sem er öflugt sótthreinsiefni, og Catholyte, sem er milt hreinsiefni. Rafallinn er hannaður fyrir stöðuga og sjálfvirka framleiðslu og kemur í mismunandi stærðum fyrir smá eða stór kerfi. ECA rafall tryggir jafna og örugga sótthreinsun með minni efnanotkun og er um leið umhverfisvænn kostur.
Scroll to Top