Lausn Fyrir Sjávarútveg
Sjávarútvegur
ECA hentar vel til að sótthreinsa drykkjarvatn og kjölfestuvatn um borð í skipum. Einnig má bæta Anolyte út í vatnið í ísvélum til að tryggja öruggari afurð við vinnslu og pökkun um borð. Sýnt hefur verið fram á að Anolyte er afar virkt gegn bakteríum á borð við kóleríubakteríuna (Vibrio Cholerae) og E. coli, sem skilar öruggari vöru til neytendans.
Alhliða lausn
Fjölhæfir möguleikar
Framleiðslusvæði
Anolyte er góð lausn gegn örverum á yfirborðum og gólfum, ásamt því gerir það gólf og bekki minna sleip.
Tankar
Bæði er hægt að nota sterka lausn af Anolyte við hreinsun á tönkum en einnig veikari lausn til þess að geymsluþol þeirra
Notkun á Íslandi
Lausnin gerir kleift að auka afköst og einfalda þrifaferla verulega. Hægt er að stytta hefðbundið fimm skrefa þrifaferli (skol, sápa, skol, sótthreinsun, skol) niður í þrjú skref, sem sparar tíma og vatn. Með því að sótthreinsa allt vinnsluvatn, jafnt í landi sem og á sjó, má lágmarka þörfina á að stöðva framleiðslu vegna þrifa. Þetta eykur ekki einungis framleiðni heldur bætir einnig öryggi starfsfólks og dregur úr slysahættu á vinnusvæðum. Í fiskvinnslu er lausnin notuð til að djúphreinsa tóma fiskitanka og kör. Einnig er hægt að bæta henni í lágum styrk út í geymsluvatn með afla. Rannsóknir hafa sýnt að þessi aðferð lengir geymsluþol fisksins, dregur úr bakteríumagni og skilar betri gæðum á afurðinni, sem sést meðal annars á ástandi augna, tálkna og þéttleika fisksins. Brim ehf hefur nú þegar notast við ECA rafala í sjávarútvegi og hafa niðurstöðurnar reynst afar árangursríkar.“